Enn á lífi - rétt svo. Ligg veikur heima, leiðist óskaplega.
Þátturinn síðasta sunnudag var skemmtilegur, það var lag. Þátturinn á sunnudaginn kemur verður, ja, ég veit það ekki, ég hef nefnilega aldrei séð hann. Verð víst bara að bíða og horfa með pöplinum. Skemmtilegt. Nú fer líka að færast fjör í leikinn.
Þakka jákvæðar athugasemdir, bæði hér og í raunheimum.
Verð að spila í ammælisdaxkrá Stórubúðarinnar á morgun ásamt hinu fólkinu úr sjónvarpinu. Svona uppúr hálffjögur.
Kórdiskurinn var sendur til útlanda í morgun. Þar á að búa til tvöþúsund eintök í viðbót. Útgáfudagur stenst þar af leiðandi (7,9,13) og áhugasamir geta haft samband við mig eftir 1. nóvember.
Svo á ég auðvitað afmæli bráðum. Stór veisla. Meira síðar.
2 ummæli:
Frábær Stund. Við fjölskyldan erum ótrúlega ánægð með hana - auðvitað sér í lagi með tónlistina og Ívar, góðvin. "Gæsahúðarlagið" er frábært, algjör Ohrwurm og bara frábært. Ég reyndi eins og ég gat að hlusta eftir öllum fídusum í laginu, hljóðfærum og svoleiðis. Mjög flott allt saman.
Hlakka líka til næsta sunnudags!
Svona á Stundin að vera: Fyrir alla fjölskyldan, góð samverustund með börnunum - fyrir framan sjónvarpið :)
Bryndís frænka
Láttu þér bestna, hér í firðinum liggur annarhver maður í ógeðspest, en ekki ég, ég er hinhver.
Jííí, það er svo gaman að halda veislu.....
Skrifa ummæli