6.9.06

Magni-ficent & Magni-fied

Jæja, allir að horfa á Magnavöku?

Verð að viðurkenna að ég er ansi klofinn í afstöðu minni akkúrat núna. Nettur aulahrollur ansi oft, en stundum gaman að upplifa stemmninguna sem hefur byxt (!) upp síðustu vikur. Held samt í þá afstöðu mína að Magni ætti ekki að fara í úrslitaþáttinn, því þá gæti hann neyðst til að vinna með þessum útbrunnu gæjum næsta árið - hvort sem hann vill eða ekki. Mun því ekki kjósa í kvöld - þið getið þá kennt mér um ef hann dettur út...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Held að hann eigi ágætis möguleika en samkeppnin er orðin fjandi hörð.