Hitti gamla vinkonu um daginn og átti við hana gott spjall um heima og geyma(!), meðal annars um bloggmenninguna.
Hef nefnilega lent í því að hitta fólk sem ég hef ekki hitt lengi, og ætlað að skiptast á fréttum. "Veistu, það kom dálítið fyrir mig um daginn..." "Já, ég las það á blogginu þínu, rosalegt maður. Ég hins vegar..." "Jamm, las það." Og svo framvegis. Einhvern veginn deyr spjallið bara, því allir hafa lesið allt um alla...
Velti því þess vegna fyrir mér hversu sniðugt það er að blogga reglulega um daginn og veginn (ekki að ég bloggi oft eða deili öllu með þessum fáu hræðum sem villast hingað annað slagið).
Vinkona mín var fullkomnlega sammála, sagðist blogga stutt og kryptískt, meðal annars til að koma í veg fyrir svona uppákomur. Sagðist hins vegar nota bloggsíður m.a. til að fylgjast með fólki, skyldmennum og gömlum kunningjum, sem hún væri annars ekki í neinu sambandi við. Vildi því ekki afskrifa bloggheiminn.
Fengum svo sem enga niðurstöðu í málið - datt bara í hug að deila þessu með ykkur báðum...
7 ummæli:
uss, kva! maður getur alltaf fundið eitthvað að spjalla um...
Lenti reyndar í þessu við vinkonu mína um daginn - hún vissi allt um mig en ekki öfugt og ég sagði að hún yrði bara að fara að blogga, þá gætum við alveg sleppt því að tala saman.
Ég hef aldrei lent í þessu! hvað þýðir það?
Já kannast eitthvað við þetta, en það er hægt að hafa svona bland í poka blogg. Segja stundum hvað á daga manns drífur og svo kanndki einhverjar pælingar um lífið og tilveruna eða eitthvað djók. Það finnst mér svo frábært við bloggið, maður ræður alveg sjálfur hvað maður setur þarna inn.
Takk annras fyrir síðast :O)
Það var reglulega gaman þó ég hefði viljað vera í betra formi þennan dag.
mer finnst fint ad fa frettir af ther kryptiskar eller ej. eg kannast ekki vid ad hafa lent i thessu, en thad er kannski vegna thess ad bloggid mitt er bara hitt og thetta. ekkert skipulag og of mikil leti til ad halda ut nakvaemum lysingum a daglegu stussi. svo eg haldi nu adeins afram, ad tha er thetta fyrirtaks midill til ad halda "sambandi" vid gamla (kor)felaga - tala nu ekki um yfir sjo og sand. er samt viss um ad vid gaetum alveg haldid uppi einhverjum samraedum ef svo kaemi til ad vid myndum hittast a fornum vegi! kv. fra itoku!
Ég hef mjög oft lent í því að hitta einhverja sem ég hef ekki hugmynd um að lesa bloggið mitt. Hinsvegar hef ég aldrei lent í því að samtalið deyji vegna þess, öfugt heldur að það er hægt að ræða það betur sem viðkomandi hefur lesið á blogginu, eða bara um eitthvað allt annað :). Kannski er þetta líka vegna þess að ég blogga alls ekki um allt sem gerist hjá mér - bara um útvalda, mjög misjafnt áhugaverða, hluti :)
Annars finnst mér mjög, mjög gaman að fylgjast með hjá fólki sem ég þekki og það lífgar uppá kynni sem annars myndu kannski falla í gleymsku með tímanum.
lengi lifi bloggið, húrra... ;)
Takk fyrir skoðanirnar :-)
Mér finnst líka gaman að fylgjast með fólki sem ég þekki mismikið, hvort sem það eyðileggur samræður eða hjálpar þeim.
Svo hef ég líka svo gaman af því að tjá mig...
Ég er því alls ekki hættur að blogga, enda hef ég alltaf haft það í huga að hver sem er getur rambað hingað inn...
Dgegg...
Skrifa ummæli