Þvílíkir snillingar!
Hverjum dettur í hug að nota "bavíana" sem grunn fyrir rím í 3 erindi? Og hverjum text að láta það virka? Hvað rímar við "bavíana"? Hugmyndir? Anyone?
Allavega, alveg upptekinn, amk fyrir þennan þriðjung. Mikið fjör, og útkoman afar skemmtileg og ótrúlega fjölbreytt. Óhætt að lofa góðri skemmtun frá og með október...
7 ummæli:
hafi hana? skafi rana?
í kvöld ætlum við á barinn, það kæmi mér ekki á óvart ef við fengjum G&T... Illugi er farinn að fjarlægjast svo nú er það bara ég, útlendingurinn og unglingsstúlkan...
haf'í'ana
skaf'í'ana
hvílíkt auðvelt!
bara annað til að prófa að ýta á fatlaða merkið neðst.
það er mjög fyndið að prófa það. Kom kona og taldi fyrir mig á frönsku.
Það verður reyndar að viðurkennast að skáldið beitir mjög langsóttum afbrigðum í tvö skipti ... og síðan eintómum endurtekningum í þriðja erindi ... svo hin eiginlegu rímorð eru eiginlega bara 3 auk bavíana. Og þegar er búið að giska á eitt, enda þvílíkt auðvelt.
Og fyrir hönd hinna skáldanna fleygi ég fyrstu tveimur orðunum beint í hljómsveitina aftur. "Þvílíkir snillingar." Og útkoman eftir því. Og bara þriðjungurinn búinn. Hlakkihlakk.
ég hlakka mikið til að sjá útkomuna
Skrifa ummæli