22.8.06

Köttur úr skjatta

Þar með er allt orðið opinbert: Þær upptökur sem hér hafa verið ræddar undir rós tengjast Stundinni Okkar. GEN er sem sagt einn meðlimur hljómsveitar þáttarins. Snillingarnir sem semja eru ljótu hálfvitarnir (eða var það með stórum staf?): Toggi, Ármann og Sævar. Með þeim er Snæbjörn nokkur sem er álíka mikill vitleysingur, en hefur ívíð meiri tónlistarreynslu en hinir.

Í síðustu viku tókum við upp hljóðfæraleik í fyrstu 5 lögunum, en þar má heyra GEN tjá sig á píanó, Hammond, slagverk alls kyns og óbó með effektum, auk þess sem hann söng inn 18 manna karlakór, bara svona af því að það gæti passað. Næstu 5 lög fara í vinnslu upp úr helgi, GEN hlakkar til. Mögulegt má teljast að fleiri hljóðfæri komi þar við sögu, svona rétt til að auka fjölbreytnina og lengja listann skyldi tónlistin einhvern tímann koma út á geislaplötu...

Í dag hefjast svo söngupptökur við fyrstu lögin 5, GEN mun þar að sjálfsögðu reyna að skipta sér af sem mest hann má...

1 ummæli:

Gigglito sagði...

If you caaaan, make it theeeere, oh you're gonna make it (pa-woom-tsjing) anywhere! Frábært Gunni minn!