2.6.06

Vikan

Gekk á Esjuna með 9. bekkingum á þriðjudaxmorgun. Er ekki mikið fyrir fjallgöngur og hafði aldrei upp á Esjuna komið. Gekk vel og allir náðu settu marki. Þreyttur eftirá, en góður undirbúningur fyrir sumarstarfið.

Sá Dúndurfréttir á Gauknum bæði þriðjudax- og miðvikudaxkvöld. Góðir, en ekki alveg í toppformi.

Síðasti kennsludagur í dag, íþróttadagur á þriðjudag og skólaslit á miðvikudag.

Veit ekki hvort mig langar meira á Reykjavík Tropic eða Hraun á Rósenberg í kvöld. Ætla að elda eitthvað gott og sjá svo til. Svo var mér skipað á Players á sunnudaginn, veit ekki alveg hvort ég hlýði því...

4 ummæli:

Syngibjörg sagði...

Garpur!!

En var að spá,getur þú kennt mér að gera svona eins og þú gerðir á færslunni um tónleikana, settir nöfn hljómsveitanna í annan lit og ef maður klikar á nafnið þá birtist umfjöllun um það á skjáinn.
Hef séð þetta gert hjá mörgum og verð eiginlega að fara að læra þetta. Nennirðu???

GEN sagði...

Ekkert mál :-)
Þú skrifar textann fyrst og blokkar svo orðið/orðin sem þú vilt að vísi eitthvert annað. Smellir síðan á litla mynd af grænum hnetti sem er hjá leturbreytingunum (Bold, Italic...), þá birtist lítill skjár. Þar skrifarðu slóðina sem þú vilt vísa á og velur OK.
Skrifar t.d. "Æfing hjá kórnum í gær." Blokkar orðið "kórnum" og skrifar "http://kor.is/" og þar með vísarðu þangað.
Þetta lítur stundum asnalega út en með því að velja Preview sérðu hvort þetta virkaði ekki.

Syngibjörg sagði...

Þú ert æði. takk fyrir þetta:O)
Prufa svo hvort þetta gengur hjá mér, er ekki neitt voða flínk á tölvuna, jæja sjáum til hvað gerist.

Nafnlaus sagði...

Hvað er þetta Esja?