Alltaf gaman að horfa á þessa keppni.
Nýtt form á keppninni: allir skólarnir 30 í undankeppni í dag og 12 í úrslit. (Fannst Freyr reyndar segja 13 skólar áðan, veit ekki hvort mér misheyrðist, hann mismælti sig eða eitthvað klikkaði í dag.) Þetta form virkar að sumu leyti ágætlega, enda varla nema fyrir hörðustu aðdáendur að horfa á alla rununa. Ég átti erfitt með að velja bara 12 í dag, vildi helst heyra 18 lög aftur í kvöld. Hin 22 áttu bara ekki heima í söngkeppni. Dómnefndin valdi 10 af mínum 18, 2 sem ég hefði ekki sent áfram.
Sýnist sú húsvíska vera frænka mín - "Blame it on the sun."
Sú kópvoxka (dóttir Samúels íþróttafréttamanns) var mikið í Kjarnanum (félaxmiðstöð Kópavoxkóla) meðan ég vann þar og í Ekkó.
Sonur Bjarkar komst ekki áfram í dag, enda kannski ekki mikill söngvari á hefðbundna kvarða, þó músíkalskur sé.
Held ég hafi séð dóttur Hebba í undankeppninni í dag, man ekki hvort hún komst áfram.
Undur og stórmerki gerðust í dag: Stúlkan frá Akranesi söng "Ruby Tuesday" stórvel. Eins og áhugasamir vita er þetta eitt af amk. 3 lögum sem eru yfirleitt mjög illa sungin, þ.e. valin af óöruggum og óreyndum söngkonum - hin eru Ástarsorg (saxófónlagið með Brunaliðinu) og "Á ég ást mína að játa" úr JC Superstar.
Merkilega margir fiðluleikarar í ár.
Sándið líka skárra en oft áður.
Velti því fyrir mér í dag hvort engin tímamörk væru á lögunum (eða flutningunum eins og Ædol-strákarnir segja (já, var ekki alveg sáttur með úrslitin í gær...)), fannst sko sum í lengra lagi.
Sigurvegarinn frá í fyrra með tvö lög, fyrst sigurlagið í sínum söngleikja/kabarettstíl og svo annað ansi mikið fönkaðra. Fín söngkona. Svo hefur trompetleikarinn líka verið á námskeiði hjá mér.
Í syrpurnar frá fyrri árum vantaði ýmsa, til dæmis Margréti Eir og Emilíönu. Gaman samt að sjá þessar gömlu myndir. Þarna heyrðist líka í mér...
Úrslitin nokkuð sanngjörn, ekki alveg mín röð en svona nálægt.
5 ummæli:
Ég eeelska söngkeppnina! Sat ein fyrir framan tölvuna hér í Sverige og talaði (við sjálfa mig) illa um léleg atriði og hrósaði góðum, hló að klisjunum og fékk aulahroll í hvert skipti sem kynnarnir opnuðu munninn. Finnst samt nýja fyrirkomulagið ekki nógu gott, t.d. ef litið er til þess að 100 krakkar komu með rútu frá Ísafirði til Reykjavíkur og atriði MÍ komst svo ekki í úrslit (ekki það að mér fannst það svosem ekkert skrítið, en það er annað mál) sem er leiðinlegt uppá stemninguna að gera. Stuðningslið skóla úti á landi nenna ekkert að gera sér ferð til Reykjavíkur í von og óvon.
Fhöjúff!
Er ekki annars allt gott að frétta? Haaa??? :)
Jamm, áhorfendaskorturinn var einn af stóru göllunum við fyrirkomulagið.
Annars er allt fínt bara, en í útlöndum?
Sæll, ég er trompetleikarinn sem var að spila á söng.framh.
Hvenar var ég í námskeiði hjá þér?
k.v. Ari
Tónlistarskóli Seltjarnarness átti afmæli ef ég man rétt, við vorum tvö með tónlistarmiðlunar-workshop sem endaði með tónleikum í kirkjunni.
Annars getur líka verið að mér hafi missýnst og við höfum aldrei hist...
Já, alveg rétt
Óbóleikarinn
Þetta stemmir
Skrifa ummæli