6.4.06

Loxins!

MA vann fyrsta árið sem ég gekk í skólann (og árið áður), en svo ekki fyrr en nú í kvöld. Kominn tími til!

Kóræfing gekk merkilega vel, þó ekki væru raddir nema hálfskipaðar. Gamall félagi mætti aftur eftir nokkurra mánaða sjúkraþjálfunarferli, gott að sjá hann á sínum stað. Írska "þjóðlagið" sem einhver óþekktur skrifaði niður (!) hljómar sífellt betur.

Kenndi í dag, og gekk ágætlega. Einn dagur eftir fram að páskafríi - vona að ég endist svo lengi...

Söngkeppni FF á laugardag.

Síðan mín orðin eðlileg í Explorernum - loxins!

2 ummæli:

Hildigunnur sagði...

híhí :-D

Nafnlaus sagði...

Vei! En söngkeppnin verður með breyttu formi, það verður undankeppni fyrr um daginn og þau 12 lög sem komast áfram verða í sjónvarpskeppninni um kvöldið.. veit ekki.