Rosalega á ég mörg lög!
Ég byrjaði í kvöld að sortera allar kórnóturnar mínar: MA-kórinn, Háskólakórinn, Íslenski kórinn í London, Árnesingakórinn og Vox academica. Að auki kórnótur sem mér hafa áskotnast annars staðar. MA nóturnar í einni möppu, Háskólanótur í annarri, restin á víð og dreif, ýmist í plasti eða lausblaðahrúgum.
Ég keypti 4 stórar möppur og 100 plastvasa (á slatta fyrir) til að vista safnið í, en fann ekki nógu góð milliblöð - einn staf í einu.
Býst ekki við að ljúka verkinu í kvöld, sé fram á vinnutarnir fram á sumar...
Rosalega á ég mörg lög!
1 ummæli:
Má ekki bjóða þér að koma hingað og sortera? Af nógu er að taka, gætir fundið eitthvað sem þú átt ekki:O)
Skrifa ummæli