23.4.06

05:08

Það er farið að birta úti, og ekki bara vegna grámans sem fylgir alltaf snjókomu - já, það snjóar. Ég hóf nótnatörn nr. 2 um tíuleytið í (gær-)kvöld og er að huxa um að hætta núna.

Fyrsta törnin tók ekki nema 2 tíma, en þá voru plöstin mín búin, líklega um 150 lög komin í möppur - að sjálfsögðu eitt lag í hverjum plastvasa. Nú eru um 200 plöst til viðbótar farin og möppurnar fullar, enda sér fyrir endann á verkefninu, þó enn bíði nokkrir nótnabunkar.

Til að vera heiðarlegur verð ég víst að viðurkenna að ég týndi klukkutíma þegar ég byrjaði á London-hrúgunni og raxt á gamlar stílabækur með glósum og verkefnum frá Guildhall. Inn á milli eru líka hugleiðingar skrifaðar á víð og dreif um London. Ég hvarf í huganum aftur í tímann og rifjaði upp stemmninguna, verkefnin, vandamálin, skemmtanirnar, ástarmálin og önnur viðfangsefni pistlanna, hló upphátt nokkrum sinnum, fékk útþrá, saknaði fólks og staða, táraðist. Gladdist samt yfir því að hafa upplifað þessi ár...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er búin að hlusta á O Magnum Mysterium svo oft í dag.. ótrúlegt að þú hafir bara átt þetta og ég ekki vitað af því.

En hvað segirðu, London eitthvað?

GEN sagði...

Aldrei að vita, ekkert ákveðið enn. Dálítið þema þessa dagana samt...