12.3.06

RENT

Ég fór tvisvar í bíó um helgina og sá sömu myndina í bæði skiptin. Ekki vegna leixigra(!) eða jafnvel söguþráðarins, heldur vegna tónlistarinnar. Ég sá RENT á West End meðan ég bjó í London og aftur hér heima '99, og tónlistin náði mér algjörlega. Auðvitað ekki öll lögin, en fleiri en vanalega í svona söngleikjum. Þegar ég gisti á Amtmannsstígnum á leið milli Akureyrar og London var diskurinn yfirleitt spilaður ótæpilega. Ég hafði hins vegar ekki heyrt lögin í nokkur ár og upplifunin í gær var því óvenju sterk. Jamm, ég táraðist aftur og aftur, og gat ekki beðið eftir að sjá myndina aftur í dag. Það er langt síðan ég sá sömu myndina tvisvar í bíó, og aldrei hef ég farið tvo daga í röð.

Mæli með því að sem flestir sjái myndina, en hafa ber í huga að þetta er söngleikur í kvikmyndaformi og því hvorki frábær kvikmynd né snilldar söngleikjauppfærsla. Slakið því á gagnrýninni, slappið af og njótið.

Ég fann diskinn með Broadway-uppsetningunni í Skífunni í dag en var ekki með peninga á mér. Þegar ég kom aftur tveim tímum seinna var hann farinn. Lét panta hann fyrir mig, en þangað til hann kemur verða þessi stuttu hljóðdæmi hér að nægja.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oh, ég elska RENT. Sá reyndar bara uppfærsluna hérna heima og kolféll gjörsamlega. Elska tónlistina og bíð spennt eftir að sjá myndina, en ég er algjör sökker fyrir söngleikjum - en reyni að gera mér ekki of miklar vonir :)

Nafnlaus sagði...

Önnur vel heppnuð söngleikjamynd að mínu mati er Litla Hryllingsbúðin, nýrri útgáfan m. Steve Martin meðan hann var upp á sitt besta. Parisardaman.

Syngibjörg sagði...

Veiiii, það er semsagt hægt að fara og horfa og njóta. Gleymi seint uppfærslunni sem ég sá hér. Margrét Eir og símasnúruatriðið er eitt það flottasta sem ég hef séð í leikhúsi. Fullkomin tæming og hrein snilld.

Nafnlaus sagði...

Ég dottaði af og til eftir að upphafslaginu lauk og frma að hléi. FAnnst seinni hlutinn hins vegar ágætur. Samt er of mikið af ólögum þarna og vantar fleiri eftirminnilegar melódíur. Ég man ekkert nema fæv-þásend-lagið :)

Nafnlaus sagði...

mér finnast þau nú bara ekkert stutt.. þetta eru heilu lögin hér:

http://rentmoviesoundtrack.com/ :)

skenntilett.. þetta er búið að rúlla hér hjá mér í morgun.

GEN sagði...

Allt í lagi að hlakka til, ef maður hefur séð söngleikinn er maður betur undirbúinn.

Jamm það er rétt, Hryllingsbúðin er skemmtileg líka :-)

MEir var einmitt einn íbúi Amtmannsstíxins á sínum tíma, og já, hún var flott í showinu hér heima. Þetta var líka í fyrsta (og líklega eina) skipti sem ég tók Helga Björns í sátt sem söngvara - hann var flottur Tom Collins.

"Will I loose my dignity?" og "There's only love" eru flott, jafnvel flottari en 525.600 lagið finnst mér.

Var ekki búinn að sjá hlutann með öllum lögunum, bara stutta búta á fyrstu síðunni held ég. Þarna eru samt ekki öll óriginal lögin úr söngleiknum, vantar nokkrar góðar útgáfur eða rípræs af sumum melódíum...