4.2.06
Stefið
Hefur einhver pælt í stefinu í spurningakeppninni um Júró? Það er sett saman úr laglínum íslenskra Júrólaga, haganleg samsuða og erfitt að greina lögin í sundur, nema maður hlusti af mikilli einbeitingu. Mér sýndist þetta eignað Kjartani Valdimarssyni en er þó ekki viss. Spurning um að vakna í fyrramálið til að sjá endursýninguna, nú eða bara muna þetta í næstu viku..?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli