100% minnir eilítið á Geirmund, nema rappið auðvitað. Veit ekki með pósuna hjá rapparanum í pásunni hans...
Útópía já? Mér finnst að Roland ætti að hreinsa slitnu hárin af boganum. Byrjunin: Bessa me mucho anyone? Skemmtileg söngkona samt, en átti hún að fá svona kryppu á bakið þegar jakkinn hékk aftan á henni? Ágætis grúv.
Á ég? Bjartmar orðinn söngvari já? Glöggir muna kannski eftir honum að þvælast um sviðið bak við Jónsa í Söngkeppni FF '96. Fannst hann nú betri dansari en söngvari. Lagið leiðinlegt og textinn ekki að hjálpa því.
Sylvía Nótt. Hvað er hægt að segja? Ágústa er fín söngkona, Sylvía ekki alveg jafn góð. Skyldi Gísli loxins komast í Júró? Siggu Beinteins leið ekkert voðalega vel í átfittinu, og nærföt dansarana...
Meðan hjartað slær. "Meðan schjál mína Schjá." Hvar er viðlagið?
Mig langar að hafa þig hér. Hvenær á hún að eiga? Má hún fljúga út? Rosalega vont klósöpp í lokin maður!
Það var lagið. Gott lúkk á bandinu maður. Einar sérstaklega góður með flétturnar. Hvernig er hægt að hleypa þessu áfram en ekki þessu?
Mynd af þér. Á að senda Birgittu aftur? Alltaf kúl að dansa með staf(!) og lagið auðheyrilega samið fyrir keppnina.
Hvað á maður að gera? Hvaða lag ætti að fara út? Get ekki sagt að ég hafi heyrt eitt einasta lag sem mér fannst virkilega gott, hvorki nú né síðustu tvær vikur. Kannski venst maður einhverju...
2 ummæli:
Hér á þessum bæ var mikið hlegið að Nóttinni,eina lagið sem hljómar enn í mínum haus.
Ótrúleg flatneskja í gangi annars í þessari keppni. Kann enginn að gera góðar laglínur lengur??
Svo slæm nærmynd já og entist alltof lengi. 100% var einn sá mesti hryllingur sem ég hef heyrt og söngkonan var slæm, skil ekki hvernig það komst áfram.
Yfir höfuð fannst mér söngvararnir svolítið á reiki, 1-2 sem voru alveg hreinir. Ég held með Sylvíu, líka vegna þess að mér finnst lagið það skásta sem boðið hefur verið upp á í þessari undankeppni.
Skrifa ummæli