Geir ólafs alltaf eins. Veit ekki með lagið...
Fanney gæti hafa verið í skóla með mér, systir hennar fiðluleikarinn var alla vega í Tónó þegar ég byrjaði. Gaman að sjá Vigdísi frænku Garðarsdóttur á sviðinu, en persónulega finnst mér þetta lag nú betra...
Eyvi breytist lítið, nema meikið eyxt(!). Yfirleitt finnst mér Bergsveinn svolítið skemmtilegur söngvari, en þarna var hann skrýtinn...
- Í auglýsingahléi má geta þess að Baggalútsmenn rokkuðu í spurningakeppninni, ef hægt er að tala um rokk í þessu samhengi -
Guðrún Árdný hefur aldrei höfðað til mín sem söngkona. Lögin 2 eftir þennan Trausta eru bæði dálítið klassísk og fara lengst upp í ra... - já eða alla vega mjög hátt upp. Hitt (sem Regína söng í síðustu viku) fannst mér skemmtilegra, en þetta fylgir vissulega ákveðinni Júró-formúlu. Svolítið þvingað þarna uppi...
Bravó og Magni gætu virkað í útlöndum þótt lagið sé ekki beint móðins. Benni góður á trommunum. Vantaði svona katsjí kórus...
Ardís skoppandi skemmtileg í Grís-átfitti, og svona hallærislegir dansarar bakvið. Var hún að syngja eitthvað? Neinei, ég heyrði lagið alveg, fannst það bara leiðinlegt...
- Merkilegt hvað Óli Palli, Magga Stína og Dr. Gunni stóðu sig illa í fyrrnefndri spurningakeppni, hefði ekki trúað þessu upp á þau -
Þekki ekki Sigurjón Brink en man eftir 8villtum. Svona Salsa-lög þurfa að vera mjög sterk til að skera sig frá öllum hinum dægur-Salsa-lögunum. Þetta náði því ekki. Dansararnir voru hins vegar flottir.
100% hamingja? Neibb. 5% of djúpt, 15% "tínir af mér spjarirnar ég dansa fyrir þig," 25% furðulegur dans, 55% flottar bakraddir.
8 lög af 24 búin og ég hef ekki enn heyrt lagið sem ég held með - ja, nema ef þetta telst með..?
3 ummæli:
hvað meinarðu með að Geir Ólafs sé alltaf eins, hann söng svosem einni og hálfri áttund neðar en hann er vanur!!!
En karakterinn breytist lítið...
sorglegt, bara sorglegt...
Skrifa ummæli