28.1.06

Heima

Þetta er fyrsta færslan sem er skrifuð heima í Vesturbænum. Hér er þetta ágæta þráðlausa net, þó ég viti reyndar ekki hvort það fylgir blokkinni eða bara einhverjum óvarkárum íbúa.

Hér eru enn nokkuð margir kassar á gólfum, og diskarnir eru óflokkaðir í hillum. Ég tengdi hins vegar græjurnar mínar í gær eftir að hafa keypt ansi skemmtileg millistykki í Íhlutum í Skipholtinu. Annars vegar er um að ræða tvítengi með rofa fyrir Scart-tengi, og því þarf ég ekki að baxla í sjónvarpsbakinu og skipta milli DVD- og vídeótengja.
Hitt er fjöltengi (með rofa) fyrir RCA-tengi. Græjurnar mínar eru nefnilega eilítið farnar að eldast, og þegar skipt er milli t.d. Aux og Tuner þarf að juða tökkum fram og aftur til að ná góðu sambandi. Nýja fjöltengið tekur 3 tengi (geislaspilara, útvarp og DVD-spilara) og sameinar í eitt. Þá þarf ég aldrei að hreyfa takkana á magnaranum framar. Sniðugt.
Ég átti hins vegar ekki nógu margar snúrur og varð þess vegna að skreppa í verslunarleiðangur eftir kóræfingu í dag. Nú er lox allt tengt og ég get hlustað á það sem ég vil...

Kórinn hans er með tónleika á Myrkum Músíkdögum 7. febrúar. Við Pezus og Bird erum með sóló. Hilmar Örn samdi fyrir okkur verk, sem og nýverðlaunaður Haukur Tómasson. Egill Gunnars á líka stykki ásamt fleirum. Mæta!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jahá, það verður skemmtilegt. Er það á þriðjudegi?

GEN sagði...

Jamm, þriðjudaxkvöld.