Ég sit einn í skólanum þar sem ég kenni, og hef verið hér í eina 3 tíma. Er að semja og taka upp tónlist fyrir dansverkið "Í nágrenni við þig er dans", nánar tiltekið fyrir annan hluta verksins. Fyrsti hluti var sýndur í desemberbyrjun hér í póstnúmeri 112 og kallaðist "Ég dansa". Annar hlutinn heitir "Villtan trylltan" og ætlunin er að sýna hann öðru hvoru megin við mánaðamótin febrúar/mars, líklega í skóla á 105 svæðinu. Síðasti hlutinn, "Ástardans", verður svo vonandi sýndur í vor á nýju svæði.
Upptökur ganga ágætlega, nú þegar þær eru loxins hafnar eftir miklar tafir og frestanir. Afríska lofgjörðin heimtaði alla mína athygli um tíma, þar áður var prófatíð með tilheyrandi yfirlegu og aukavinnu...
En nú er ég sem sagt kominn á fullt. Er búinn að taka upp 3 búta í dag, líklega um 12 mínútur samtals, þó bútarnir verði kannski ekki allir nýttir í heild sinni. Stefnan er sett á 20 mínútna verk, með 3 mínútna forleik þar sem spilað er á undirmeðvitund fólks. Áhugasömum er bent á að nánari upplýsingar munu birtast hér á síðunni þegar nær dregur.
Annars var helgin ágæt. Kórinn minn vakti lukku á bjórkvöldinu, kaffihúsin eru ágæt, afmælismáltíðin var góð, alltaf er jafn gott að hitta gamla vini eftir áralanga fjarveru, og síðast en ekki síst er ég enn jafn ástfanginn.
"I can't wait to get off work and see my baby..."
Engin ummæli:
Skrifa ummæli