Það var eitthvað verið að kvarta yfir bloggleysi. Hér kemur blogg.
Við erum ennþá ólétt. Mjög ólétt. Eiginlega alveg rosalega ólétt. Íbúðin fer alveg að verða tilbúin, vantar bara herslumuninn. Þvottavélin má alveg hætta að stríða okkur, en annars er ekkert voðalega mikið eftir. Málaði baðherbergið í dag og svona.
Ég er byrjaður aftur að kenna. Tvo daga í viku, ekki eftir stundatöflu heldur vinn ég með þeim hópum sem ég vil. Tónsköpun allan daginn.
Svo eru kórarnir allir byrjaðir. Stefnir á afmæli svo vortónleikarnir verða stórir. Árnesingar halda líklega upp á afmæli annars, það verða líka stórir tónleikar. Spurning hvað ég geri með Kvennó.
Þangað til næst...
4 ummæli:
Ertu að gefa í skyn að ég sé eitthvað erfið þessa dagana? ;)
hohoho ég hló upphátt!
Ollolloll, þetta er æðislegur tími! Ég er spennt að fá fréttir, og gott með þig Gunnar að skrifa færslu!
kv. Þuríður
p.s. fenguði fínu sokkana?
Nei elskan mín, hvernig dettur þér það í hug?
ThP: Já, takk fyrir þessa frábæru sendingu :-) Sokkarnir munu tvímælalaust nýtast okkur vel...
Takk fyrir að blogga - gaman að fylgjast með í mýflugumynd :)
Skrifa ummæli