10.1.09

Ný rútína

Ég vil byrja á að biðja báðar lesendur mínar afsökunar á eilífum ruslsíðum sem skjóta upp kollinum þegar þessi síða er opnuð - í það minnsta í sumum vöfrum. Ég kann ekki að koma í veg fyrir þetta.

Annars er ég kominn í frí frá skólanum, og kenni ekki meir þar í vetur. Við sjáum svo til hvað gerist í haust. Þetta frí er langþráð og bráðnauðsynlegt.

Þar af leiðandi er ég laus fram undir kvöld alla virka daga. Kvennókórinn byrjar korter í fimm á þriðjudögum og fimmtudögum, hinir kórarnir byrja hálf átta. Hraun æfir klukkan 9 á miðvikudaxkvöldum. Allt í einu hef ég nægan tíma til að sinna eigin hugðarefnum. Það er skrýtið. Planið er að sinna eigin tónlist dálítið betur en undanfarið. Semja svolítið, og jafnvel æfa mig. Það verður skrýtið - en gaman.

Jafnframt get ég nú tekið að mér ýmis verkefni sem ég gat ekki áður: Námskeið í skólum, óbó- og söngupptökur fyrir hina og þessa, jarðarfarasöngur eða stjórnun, kaffihúsaferðir... Hikið ekki við að hafa samband :-)

Kórarnir eru að byrja aftur eftir langt frí, og daxkráin framundan hjá þeim er fjölbreytt. Árnesingar frumflytja (á Íslandi) þýska stuttmessu, Kvennó syngur nýlegt íslenskt popp við undirleik Hrauns, og Stefnismenn halda áfram að venjast mér og mínum vinnubrögðum. Sibelius hvað? Allt er þetta skemmtilegt, og tónleikar vorsins verða að sjálfsögðu kynntir betur hér.

Hraun semur plötu. Meira fæst ekki uppgefið fyrr en hún kemur út - hvenær sem það verður - en hún verður ólík þeim fyrri á ýmsan hátt.

Ég er orðinn Kópavoxbúi. Það venst.

Þessi bloggsíða gæti orðið aðeins líflegri en áður. Ég lofa samt engu.

Lifið heil.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vertu velkominn í Kópavoginn. Held þú venjist þessu mjög fljótlega því það er, eins og maðurinn sagði, gott að búa í Kópavogi :)

Þ.