14.5.08

Framkoma

Árnesingatónleikar gengu vel, eiginlega betur en ég þorði að vona. Kröfurnar síðustu 7 ár hafa þjálfað kórinn það vel upp að á ögurstundu gerist eitthvað sérstakt - einhver samhljómur, huxanalestur og ég veit ekki hvað - og tónlistin lifnar við. Æ hvað ég er ánægður núna :-)

Hugleixdaxkráin í gær gekk líka vel, ég spilaði á píanó, kvað og lék meira en ég hef áður gert - og gekk bara nokkuð vel held ég. Annað tækifæri fyrir ykkur á föstudaxkvöld - Þjóðleikhúskjallarinn klukkan 22:00.

Svo er bara að klára skólann og undirbúa Austfjarðaferð...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með mjög skemmtilega og flotta tónleika :)