Var á kvennakóramóti á Höfn um helgina en þar var mótslagið eftir Þóru frumflutt og hlaut mikið lof. Konunum fannst það víst heldur erfitt til að byrja með, en voru afar ánægðar þegar það lox small á lokaæfingunni. Ég er afar montinn (og með harðsperrur í lærum eftir axturinn)...
Einhver tók sig til og setti upptöku af framhaldsskólakóranámskeiðstónleikunum (!) inn á youtube. Horfið hér (hafa ber í huga að upptakan er ekki frábær, þó hún sé óendanlega miklu betri en sú frá Aldrei fór ég suður..!). Þarna má sjá félaga í Kór Kvennaskólans, Kór Iðnskólans í Reykjavík, Kór MS og Kór Versló flytja sameiginlega tónverkið sitt.
Kennarar sömdu í dag, mér sýnist þetta vera ágætt skref í rétta átt.
Hraun er að leggja lokahönd á næstu breiðskífu sína, vonast er til að hún komi út 4. júní. Mér finnst hún flott ;-)
Tónleikar:
Frumraun mín með Stefni tóxt ágætlega, þeir tónleikar verða endurteknir á föstudaxkvöld klukkan 20:00 í Víðistaðakirkju og á laugardag klukkan 16:30 í Hlégarði.
Árnesingakórinn í Reykjavík heldur sína vortónleika 14. maí klukkan 20:00 í Langholtskirkju.
Hljómeyki heldur tónleika á fimmtudaxkvöld 20:00 í Seltjarnaneskirkju (Þóra syngur, ekki ég).
Ætli ég bæti ekki á mig eins og einum kór næsta vetur...
1 ummæli:
ég er líka afar montin af þér sæti :-*
Þ.
Skrifa ummæli