22.2.08

Gettu betur

var frekar slappt (slappur, slöpp?) í kvöld. Kannski er ég bara svona gamall, en mér fannst bæði liðin klikka á augljósum hlutum hvað eftir annað. Ég vissi svörin við báðum vísbendingaspurningunum fyrst í þættinum í miðri fyrstu vísbendingu. Kommon strákar, Mjallhvít! Og að þekkja ekki Halla...

Tónlistaratriðin eru oft skemmtileg, en flytjendur beggja laga voru frekar óöruggir. "Fuglinn" var þó ívið öruggari en Simbi, en Cash-lagið hefði þurft aðeins meiri æfingu...

Nú hljóma ég eins og bitur gamall kall. Kannski ætti síðasta fyrirsögn mín betur við þessa færslu... ;-)

Engin ummæli: