Langt á milli pósta þetta sumarið.
Ýmislegt hefur gerst. Ljótu hálfvitarnir voru góðir í Borgarleikhúsinu, veislan á eftir líka.
Þeir voru líka góðir í Ýdölum, veislan eftir það var líka góð.
Ég er genginn í Hraun, þó líklega ekki af fullri alvöru fyrr en í haust. Við gætum samt sést á Egilstöðum um miðjan ágúst...
Askja er yndisleg þessa dagana, ég er kominn með þessa fínu bændabrúnku. Átti frí í gær og ákvað að nota tímann gáfulega, svo ég skrapp í Öskju. Hafði reyndar góða ástæðu, 100 ár liðin frá því að Walther von Knebel og Max Rudloff hurfu...
Svo er Stubbur litli bróðir að koma til landsins til að halda upp á ammælið sitt...
Man ekki meir...
It is a wise man who speaks little.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli