22.5.07

Hvað á ég að gera?

Skrýtið að vera kominn í sumarfrí frá öllu kórastarfi. Kórinn minn kláraði rosalegt starfsár með tónleikum á Ísafirði um helgina, og allt í einu á ég frí á kvöldin. Kom mér reyndar inn í tónlistardaxkrá Hugleix, sem flutt verður í næstu viku (þriðjudax- og föstudaxkvöld), en ekki æfum við á hverju kvöldi. Best að kaupa sér bækur.

Mæli með fallegum diski Hrauns: I can't believe it's not happiness. Tónlistin er líka fín.

Það var samt gaman fyrir vestan...

1 ummæli:

Syngibjörg sagði...

Allir glaðir - allt er gott:O)

Pikkaði píanistann og einn kórfélaga af flugvellinum og bjargaði þeim frá leiðindum sem skapast þegar maður er veðurtepptur. Gaf þeim kaffi - og þá lagast allt, líka veðrið og þeir fóru í loftið klukkutíma seinna.Píanistinn missti reyndar af tónelikunum Hzxzxzxkrtwits eða hvað hann heitir þessi barítónn sem ærir alla kvenþjóðina þessa dagana.Meina, maðurinn hélt klassíska tónleika í glansandi LEÐURBUXUM, hversu mikill töffari er hægt að vera """""!!!
En svona gigg eins og við héldum er vel þess virði að endurtaka.

og gerðu svo eitthvað skemmtilegt á mánudags og miðvikudagskvöldum.. get gefið þér hugmyndir ef þér dettur ekkert í hug:=/