Ég hef það fínt. Nóg að gera framundan:
Í kvöld er seinni sýning Þess mánaðarlega hjá Hugleik - undirritaður skapar örlitla stemmningu (víst svona) í einum einþáttungnum...
Á laugardaxkvöld verða fyrri fjáröflunartónleikar Tryggingarsamsteypu Þórðar Pálmasonar í Loftkastalanum. Markmið: Að safna fé svo Doddi geti opnað annan Rósenberg - hvort heldur á gamla staðnum eða einhvers staðar annars staðar - og tónlistarmenn á öllum aldri njóti tækifæra og frelsis sem hvergi annars staðar finnst.
Seinni tónleikarnir verða á sunnudaxkvöld. Undirritaður mun stíga á stokk á öðrum tónleikunum, mættu bara og sjáðu...
Kórinn hans heldur tónleika 5. maí, og kórinn minn þann 16.
Mættu...
2 ummæli:
það er nú bara laukrétt hjá þér. mín mistök..
við mætum á tónleika kórsins þíns og hlökkum til
Skrifa ummæli