9.12.06

Allt á fullu

Og nú á að hvessa einu sinni enn. Mér er samt alveg sama.

Karlakórinn söng í Kópavoxbúðinni í dag og gekk vel. Aftur á morgun uppúr tvö.

Kórinn minn söng um síðustu helgi og gekk vel. Aftur í febrúar.

Kórinn hans syngur næsta föstudaxkvöld klukkan átta í Langholtskirkju. Ég á miða ef ykkur langar.

Í vikunni spilaði ég á jólaballi sem verður sýnt á jóladag. Það var gaman. Ég var líka forsöngvari. Ég var með svona heyrnartæki í eyranu og heyrði allt sem gerðist inni í myndstjórn. Líka þegar ég var að syngja. Mér tóxt samt að ruglast ekkert í Einiberjarund, þó það væri talað allan tímann. Þá hlýt ég að vera orðinn keppnis.

Svo eru víst að koma jól.

Lifið heil

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ef þú ert að tala um Vox academica þá eru þau með tónleika í Grafarvogskirkju (fyrirgefðu, Grafarvoxkirkju)

Ásdís Rósa sagði...

Hei ég sá þig með strákakórinn þinn í Smáralindinni um síðustu helgi! Þið voruð í einhverju hláturlagi - mjög flott! ...er kannski kópavoxbúðin = smáralind..? :)