27.11.06

Klipp

Skildi ekki alveg þáttinn í gær. Það er reyndar ekki alveg satt, en það er bara af því að ég vissi plottið fyrirfram. Einhvern veginn tóxt sjónvarpsmönnum að klippa út lausnina á vandræðum Hamborgarbúa þegar hún var kynnt fyrst. Þá er ég auðvitað að tala um rofann. Þegar vandamálið var svo leyst birtist allt í einu einhver rofi eins og skrattinn úr heiðskíru lofti, eða þjófur úr sauðaleggnum, já eða jafnvel þruma að nóttu! Merkilegt hvernig hægt er að klúðra söguþræði í eftirvinnslu.

Kastljóss-giggið gekk vel, en örlítið bar á undarlegum klippingum og samskeytingum þar líka. Útgáfutónleikarnir sjálfir voru hins vegar stórskemmtilegir. Reyndar ekki á NASA (þar var Hemmi Gunn að taka upp þáttinn sinn) heldur á Gauknum. Gaman að fá tækifæri til að spila þar. Ég spilaði bæði lögin sem ég tók upp fyrir diskinn, og tvö önnur sem ég hafði aldrei æft með þeim. Það var spennandi.

Sá Mýrina, fannst gaman. Hef ekki lesið neina af bókum Arnaldar (já, ég veit) en hver veit hvað gerist þegar ég lýk við Eldest...


p.s. Eftir þáttinn í gær borðuðum við kengúrukjöt, heimagerðar flatbökur með kartöflum, ginlegnum hvítlauk og ýmsu öðru áleggi (eða var það ál-eggjum?), og svo brjálæðislega flottan og dýran eftirrétt, úr fínu súkkulaði með saltaðri karamellusósu í miðjunni - en saltið er eitt það dýrasta í heimi, sirka 5000 kall kílóið... Namm!

4 ummæli:

ThP sagði...

þar sem gin er notað við eldamennsku eru maturinn ætíð góður!

Nafnlaus sagði...

Oh, gefðu uppskrift að dýra eftirréttinum!

GEN sagði...

If only..! Ég er hræddur um að þú verðir að borða á Borginni í næstu heimsókn til að upplifa þessa dýrð...

Nafnlaus sagði...

Það er nú varla slæm tilhugsun...