Skemmti mér ágætlega á Airwaves. Sá reyndar ekkert á laugardag og sunnudag - æfingar og upptökur fyrir Stundina alla helgina - en náði samt 15 tímum af tónlist. Engin stór uppgötvun þetta árið, en mörg ágætis bönd samt.
Það er asnalegt að taka upp jólalög í október, en þau eru frumsamin og frábær. Útsetningarnar gera þau svo auðvitað enn betri - osturinn vellur alveg af þeim. Henti meira að segja í 6 radda kór undir trommuleiknum á sunnudaxmorguninn, útsetningin væmnari en allt (nema hitt jólalagið). Hlakkið til aðfangadax...
Horfum á þáttinn með öðru auganu með bassann í bakgrunni. Dálítið undarlegar talblöðrur úr blómunum, en skemmtilegur þáttur samt. Átján manna karlakórinn GEN (eða Klónakórinn) fór á kostum í bakröddum...
Flækjur í báðum kórunum mínum, leystar í öðrum en ekki hinum. Kemur líklega betur í ljós á morgun.
Lítur út fyrir að nemendur mínir skapi tónlist fyrir stutta heimildamynd um Ketil nokkurn Larsen. Spennandi verkefni ef það gengur upp.
Annars lítið að frétta. Ammælið mitt nálgast óðum - þér er boðið ef þú þekkir mig...
Lifið heil
4 ummæli:
Hata kórflækjur.
Þú varst sem sagt að bjóða mér í afmælið ÞITT þarna í haust B5? fattaði það núna, hehehe.....
Jamm, auðvitað. Ertu þá hætt við að koma?
hmm ef ég hefði áttað mig á því að mér yrði boðið þegar ég var að panta mér miða á GM í Köben...
Hugsa til þín frá DK ;)
Hætt við,nei en þarf að finna út leið til að koma þessum merka viðburði inn í mitt svo önnumkafna prógramm. Ekki er öll nótt úti enn...
Skrifa ummæli