16.10.06

It's been a good day

Átti góðan dag. Orðinn þó nokkuð hress, smá hor í nös en ekkert alvarlegt. Svaf út eftir gærkvöldið, átti rólegan "morgun" með bók og tónlist, fór svo til félaga míns um fimmleytið. Sátum 12 í stofunni hjá honum og horfðum á þáttinn. Svo var eldað: gæsabringur og fylltar grísakótelettur, fjólublá sósa og meðlæti. Allt smjörsteikt nema salatið. Betty Kruger (!) í eftirrétt. Afar ljúffengt, minna en þúsund kall á kjaft! Spiluðum svo Werewolf í rúma 3 tíma - snilldarspil. Verst að það verða líklega aðeins of margir í afmælinu mínu til að við getum spilað...

Kominn heim, bók og tónlist fyrir svefninn.

Er afar ánægður með nýjasta diskinn minn: Maestro með Kaizers Orchestra. Norsk snilld, mikill Waits-keimur en ýmislegt annað í gangi líka. Flott blanda.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Matu vín og vinir, best í heimi.

Nafnlaus sagði...

já þetta var gott kvöld og megi þau verða mörg og reglulega. og þú lofaðir kjötinu næsta sunnudag!

GEN sagði...

Ég kem með kjötið :-)

Varríus sagði...

Fallegt orðasamband, og sjaldgæft: Norsk snilld.