Ekki var nú myrkrið fullkomið í kvöld. Vissulega voru ljós kveikt í mörgum íbúðum og stigagöngum, en verri voru þó öll bílljósin, flugeldarnir og síðast en ekki síst fyrirtækjalýsingarnar. Meira að segja flóðlýsingar eins og á Landsspítalanum og Háskólanum. Minna myrkur en heima í sveitinni snemma í ágúst...
Forsýningin var skemmtileg, fyrstu tveir þættirnir fullunnir. Misskemmtilegt innskotsefni reyndar (hlakkið sérstaklega til "Ferðalagið okkar" í fyrsta þætti), og auðvitað er söguþráðurinn í þessum fyrstu tveim þáttum mikið til uppbygging fyrir atburðarás síðari þátta (svokallað setup, eins og atvinnumennirnir segja) en samt skemmtilegir þættir. Horfið endilega á sjónvarp allra landsmanna klukkan sex á sunnudag.
Stór dagur á morgun, stöðug daxkrá fram á nótt. Þó langar mig lítið að fara að sofa alveg strax.
World Pool Masters er skemmtilegt sjónvarpsefni, sérstaklega eftir miðnætti...
4 ummæli:
Ég skal reyna að muna eftir sjónvarpinu.... Takk fyrir afmæliskveðjuna frændi!
Bíð spennt eftir sunnudegi. Líður eins og ég sé sex ára aftur. Ví ví ví!
Okei!
Núna verðurðu að segja okkur úhht-lendíngonum hvað það er sem við eigum að leita eftir á sunnudaginn! Ég var að tékka og sé að maður getur glápt á þetta á netinu, alveg þráð(laust)beint!
Þetta er bara eins spennandi og þegar Bryndís var hér um árið að brillera klukkan sex á sunnudögum.
Ætla sko alveg að horfa.
Skrifa ummæli