27.5.06

Tónleikatörn

Á miðvikudaxkvöldið fór ég á tónleika Rásar2 á Gauknum og sá Fræ og Reykjavík spila. Fræin voru góð en Reykjavík þreytandi.

Í gærkvöld fór ég svo á NASA, en þar spiluðu Fræ, Tremolo Beer Gut, Powersolo og Heavy Trash. Fræin voru enn góð, Tremolo Beer Gut mjög þreytandi eftir svona 3 lög, Powersolo skemmtilegt band og Heavy Trash fínt band, en þá var ég orðinn þreyttur og fór heim í miðju setti enda klukkan orðin hálf þrjú.

Annað kvöld langar mig svo á seinni tónleika ör-hátíðar sem heitir Frum-, en þar verður flutt verkið Crippled Symmetry eftir Morton Feldman. Flytjendur eru 4, þar af þekki ég 3.

Að lokum er freistandi að setjast inn á Gaukinn á þriðjudax- eða miðvikudaxkvöld og hlusta á Dúndurfréttir - besta Pink Floyd/Led Zeppelin- ábreiðuband heimsins samkvæmt Rolling Stone tímaritinu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jamm. Fræ er náttúrulega skáld, rappari og söngvari allt í einum búk heimirbjejoð héðan og annar takthaukur sadjei héðan líka. Báðir Skyttur.