Bíddu, sagði ég að Makeba hefði verið ótrúleg? Mér fannst það bara þangað til ég fór á Angelite, þá komst ég að því að Makeba var bara rosalega góð, búlgörsku stelpurnar voru ótrúlegar! Þvílíkur kór! Líka gaman að því hvað daxkráin var ólík tónleikunum í Barbicaninu fyrir svona 8 árum (þar sem ég sat á þriðja bekk fyrir miðju algjörlega dáleiddur). Þá sungu þær þjóðlögin fyrir hlé og nútímatónlist eftir hlé. Nú byrjuðu þær á úrvali messutónlistar orþodox-kirkjunnar frá því snemma á miðöldum til okkar daga, og sungu svo þjóðlögin eftir hlé.
Ég held að ég hafi upplifað dálítið aðra tónleika en flestir kirkjugestir. Ég settist yst vinstra megin en þaðan reiknaði ég með að sjá nokkrar kvennanna milli súlnanna sem allt skemma. Skömmu eftir að ég settist kom hópur fólx sem settist allt í kringum mig. Ég heyrði strax á máli fólxins að það var frá austur-Evrópu. Fyrir hlé ómaði messutónlistin og ég sá nokkrar kvennanna í kringum mig tárast. Þegar þjóðlögin byrjuðu að óma fóru þær að dilla sér, sérstaklega ein sem stóð á fætur, söng stundum með, táraðist þegar sorglegu lögin byrjuðu og dansaði örlítið í þeim fjörugu. Ég sat sem sagt með um 20 Búlgari í kringum mig. Þetta breytti allri sýn minni á tónlistina, ég fór að bera þetta saman við brottflutta Íslendinga sem koma á tónleika hjá íslenskum kórum og tárast yfir Smávinunum og Sofðu unga ástin mín.
Svo keypti ég þrjá diska með þeim...
1 ummæli:
Þú heppinn alltaf.......
en þær voru æði æði æði
Skrifa ummæli