4.4.06

Veikur heima

síðan á sunnudaxkvöld. Þoli ekki að hanga heima og gera ekkert.

Hótel Holt á laugardaxkvöld - sniglar, nautalundir, súkkulaðisinfónía, og svo Dalwinnie í eftir-eftirrétt. Namm. Gott kvöld.

Ætlaði að keyra frúna heim á sunnudag, komst nokkur hundruð metra, þá dó bíllinn. Hann er nú kominn á verxtæði.

Trúi ekki að ég hafi skrifað tengsl en ekki tenxl í þarsíðustu færslu!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er það sem sagt frúin sem var send á verxtæði?

GEN sagði...

Ekki var þetta nú vel orðað (og illa stafsett að auki). Ég ber því við að heilastarfsemin er töluvert hægari nú en vanalega. Bíllinn bilaði sem sagt og fór á verxtæði í morgun. Frúin er hins vegar í góðu ástandi nema ég hef líklega náð að smita hana af þessum fjanda sem hrjáir mig og Blogger kallar "wdopf"

Syngibjörg sagði...

Láttu þér batna kallinn minn. En mikið djö..... var kórinn í góðu formi á mánudaXkvöldið. Schubert bara rann upp úr þeim með líka þessum fína hljómi.Gleðilegt.

Já til hamingju með árin 4ur.
Það er gott þegar fólk ræktar garðinn sinn.