Eftirtektarsamir sjá að einn tengillinn hér til hliðar er horfinn. Hann fylgir öðru sem er farið, kannski ekki langt, en endanlega héðan. Brottförinni fylgja ýmsar breytingar á líferni, daglegri rútínu og síðast en ekki síst á huxunarhætti. Nú þarf að rifja upp gamla tíma, huxa mörg ár aftur í tímann...
Bíllinn er líka farinn. Ég er búinn að skrifa undir leigusamning, fæ u.þ.b. tveggja ára gamlan Skoda Octavia og keyri 15.000 kílómetra, þá fæ ég nýjan. Öll þjónusta, dekk, smurning, viðgerðir, tryggingar og mánaðarlegt bón inni í mánaðargjaldinu. Ég hef aldrei átt nýjan/nýlegan bíl áður og hlakka mikið til.
Annað hefur ekki breyst: Sama íbúð, sama vinna og kórarnir halda sínu striki.
1 ummæli:
Í breytingum felast ný tækifæri:O)
Skrifa ummæli