23.3.06

Fimmtudaxkvöld

Var að koma af ágætri kóræfingu. Kenndi þeim "In this heart" sem mér hefur þótt vænt um síðan það kom út á disknum Universal Mother með Sinéad O'Connor '94. Falleg melódía, ekta írskt þjóðlag í kvartett-útsetningu, eða það hélt ég alla vega. Var hins vegar að skoða umslagið áðan og komst þá að því að lagið er eftir Sinéad sjálfa. Nema hvað, skrifaði raddirnar upp eftir disknum, ljósritaði og dreifði - vakti þvílíka lukku. Verður pottþétt flutt á vortónleikunum okkar 17. maí (klukkan 20:00 í Víðisstaðakirkju) ásamt öðrum góðum lögum.

Fékk líka frí næsta fimmtudaxkvöld til að fara á árshátíð unglingadeildarinnar okkar. Er búinn að koma mér í skemmtiatriði kennaranna (nema hvað?), veit reyndar ekki hvort ég á að dansa ballett, hipp-hopp eða breik..! Líklega sama hvað það verður, þau eiga eftir að hlæja að mér og okkur öllum, enda er það tilgangurinn.

Uppgötvaði í dag að síðan mín lítur undarlega út í Explorer, myndin og tenglarnir neðst á síðunni. Sá það ekki fyrr vegna þess að ég nota Óperu og þetta er allt í lagi þar. Ástæðan er líklega breidd myndanna með orðabókaskýringum á nöfnunum sem ég nota hér. Langar ekki að eyða þeim svo ég vona að þetta lagist eftir nokkrar færslur í viðbót - þá ættu töflurnar að vera komnar niður fyrir tenglana og allt að færast í samt lag...

Skattaskýrsla um helgina.

3 ummæli:

Hildigunnur sagði...

allt í fína með síðuna bæði í Safari og Firefox. Ekki láta Explorerruslið hafa áhrif...

og ekki setja nafnið þitt neins staðar á blaðið með útskriftinni... :-D

Syngibjörg sagði...

Afhverju þarf hann að pukrast með þessa útsetningu??

Hildigunnur sagði...

maður má strangt til tekið ekki skrifa svona upp, það er ætlast til að maður kaupi nótur, séu til útgefnar. Sem er ekkert ólíklegt. Rétthafar eiga til að gerast fúlir.