29.3.06

Domino

Leigði myndina um mannaveiðarann Domino í gær. Ágætis mynd, fróðlegt umfjöllunarefni en auðvitað dálítið glamúríserað fyrir bíóið. Sperrti eyrun þegar Waits byrjaði að syngja Cold, Cold Ground og bölvaði hressilega þegar lagið var klippt svo klaufalega að hálft slag vantaði í taktinn (þó 15/16 sé reyndar fínn taktur). Var enn að jafna mig þegar kappinn sjálfur birtist á skjánum, fór með skyggnilýsingu (eða einhvers konar framtíðarsýn) og skutlaði hetjunum í bæinn. Frábært að sjá kallinn og rullan hentaði honum vel. Skil samt ómögulega að hann hafi ekki mótmælt meðferðinni á laginu...

Er með strengi milli herðablaðanna eftir klukkutíma æfingu á hipp-hoppinu í gær. Ætli við séum ekki búin að læra svona 8 takta af 256 eða þar um bil. Ekki beint mín hilla, en þó kemur tónlistin mér að nokkrum notum. Þakka fyrir að þurfa ekki að ganga á höndum eða stökkva heljarstökk aftur á bak af litlu bretti...

Talandi um frægð: Þess má kannski geta að ég hef nokkur tengsl við fyrrnefnda hljómsveit...

1 ummæli:

hronnsa sagði...

hann er natturulega svolitid spes, and that is why we love him. gaman ad vita ad hann kemur fram i myndinni - thad gerist of sjaldan! eg var buin ad akveda ad sja domino, nu yti eg henni ofar i netflix-rodinni! kv. hronnsa.