20.3.06

Afsakið

Ég biðst afsökunar ef síðasta fyrirsögn kom einhverjum úr jafnvægi. Ég fór einfaldlega að pæla í þessu orði: sólarhringar. Af hverju segjum við ekki sólarhringir? Ég meina, sólarhringur er sá tími sem það tekur jörðina að fara hringinn kringum sólina (lærði ég það ekki örugglega á eðlisfræðibraut?). Þar af leiðandi ætti fleirtalan að vera sólarhringir, ekki satt? Þetta kemur jú hringum ekkert við, heldur hringjum...

Síðasta færsla hafði því ekkert með hringa að gera, heldur tengdist ákveðinni niðurtalningu sem er í gangi...

Engin ummæli: