19.2.06

Viðurkenning!

Jamm, ég hlaut Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkur, en þau voru afhent nú áðan í Ráðhúsinu. Gasalega fínt skjal, en ekkert leirlistaverk. Gaman að fá svona vitnisburð, sýnir að einhver kann að meta alla vinnuna sem er hluti af daglega brauðstritinu. Eða eitthvað...

1. bekkurinn minn kom svo og söng lögin sín 2 - börnin stóðu sig með prýði, og ég er ekki frá því að við höfum fengið meiri athygli en mörg önnur atriði á þessu hljóðfatlaða sviði. Alla vega var töluvert meiri aðsókn í básinn okkar í dag en í gær.

Kaffi Rósenberg í kvöld: 3 bönd að herma eftir Waits og fleiri snillingum.

3 ummæli:

Syngibjörg sagði...

TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA!!!!!!
Frábært hjá ykkur.
Alltaf gott að fá klapp á bakið og finna að það sé tekið eftir því sem maður er að gera.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju! Alveg frábært. Ekkert sem kemur samt á óvart með þig í fararbroddi.

Þarf einmitt að hringja í þig út af sotlu. Mátt búast við því á næstu dögum, þ.e. símtali frá mér :)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með hvattið. Gaman að heyra í þér aftur í úbartinu.