Lost fer vel af stað. Ég er nefnilega samferða RÚV, en ekki netinu, svo ég er rétt að byrja á 2. seríu.
Sörvævor með nýju formi gæti orðið skemmtilegur. Vonandi að þetta hressi aðeins upp á annars þreytt form...
Minni svo á tónleikana annað kvöld.
p.s. Verst finnst mér þó að Threshold sé á sama tíma og Lost, og ég á æfingu svo ég get ekki tekið annað upp og horft á hitt. Threshold er nebbnilega líka soldið spennandi og duló. Eins gott að Skjárinn endursýnir allt sitt nokkrum sinnum...
2 ummæli:
Það er náttúrulega bara snilld að vera með ADSL sjónvarp, þá getur maður bæði horft á Lost og Threshold án vídeótækis.
Já, tæknin í dag. Einhvern daginn eignast ég svoleiðis græju, en ekki í bráð...
Skrifa ummæli