Þetta skrifaði ég í gær:
"Ég hef verið óttalega andlaus undanfarið, alla vega á þessum vettvangi. Ýmislegt hefur hins vegar gerst í raunheimum. Ég átti í húsnæðisbasli og veseni sem leystist að mestu, fann íbúð í Vesturbænum og flutti þangað, gaf einkunnir og ræddi við óvenju marga foreldra, fékk góðar fréttir og slæmar fréttir, fór í afmælisrokkveislu og spilaði í óvæntu brúðkaupi sem gestir héldu að ætti að vera skírn.
Enn er allt í kössum heima hjá mér og ég sé ekki fram á að gera neinn skurk í því fyrr en í fyrsta lagi um næstu helgi. Á meðan er ég glaður yfir því að hafa HróaHött, Subway, Nóatún og Krónuna í sama húsi, og Bónusvídeó og Domino's hinum megin við götuna. Veskið er ekki alveg jafn ánægt...
p.s. alveg er það dæmigert að nú þegar ég kem mér loxins að því að blogga skuli netsamband skólans vera dyntótt. Ég veit ekki hvort þetta birtist eða ekki..."
Því má svo bæta við að í gærkvöldi tók ég upp úr nokkrum kössum - aðallega eldhúsdót - og ástandið er því aðeins skárra heima hjá mér en áður...
1 ummæli:
Til hamingju með íbúðina. Gott að heyra frá þér, elsku kadlinn minn.
Skrifa ummæli