Úff! Ég stend í stofunni minni og er bara töluvert stressaður. Samt er viðtalið búið... Stressið kom ekki fyrr en ég heyrði síðustu spurninguna - um tónmenntakennslu í öðrum skólum. Hvernig er hægt að segja sína meiningu án þess að stíga á neinar tær?
Fannst ég samt komast nokkuð vel frá því, og reyndar bara viðtalinu í heild...
Tónlistin hljómaði ágætlega, bæði gamlar upptökur og nýjar, söngur, spil og tölvutónlist.
...og ég búinn að tala í úbartið (eins og sys-tur segja...)
3 ummæli:
Megi bálið brenna lengi í þér! Spurning um klónun...
Flott viðtal og skemmtileg tónlistin! Note to self: muna að hringja í Gunnar frænda, vegna ákveðins máls ;)
Ánskotinn. Ég var að kenna og komst ekki til að heyra erkibiskups boðskap.
Skrifa ummæli