Afmæli mitt hefur verið framlengt. Í kvöld hyxt ég planta mér á gott borð á Litla Ljóta Andarunganum (svona upp úr 23:00) og sötra ljúfar veigar. Allir sem vilja geta litið við, óskað mér til hamingju og dvalið lengri eða skemmri tíma með mér.
Félaxkapurinn er nóg, engar gjafir takk.
Sjáumst
5 ummæli:
Afmæli þú átt í dag
út af því við syngjum lag.
Sama daginn sem er nú,
sannarlega fæddist þú.
:;Til hamingju með heilladaginn þinn heillakallinn minn;:
Þetta er "nýtt" íslenskt afmælislag sem vinur minn Gunnar Halldórsson fékk ljóðskáldið Þórarinn Eldjárn og tónskáldið
Atla Heimi til að semja. Gunnari finnst alger hryllingur þessi amríski afmælissöngur og að við ættum að eiga okkar eigið lag eins og hinar norðulandaþjóðirnar. Lagið er að finna í bók sem var gefin út fyrir fáeinum árum en ég man ekki hvað hún heitir. Þú ættir endilega að útvega þér hana og nota til kennslu og nota þetta lag þegar einhver á afmæli í skólanum þar sem þú kennir.Breiðum út boðskapinn og losum okkur við amríska hryllinginn.
ha, er þetta ekki Jóns Ásgeirssonar afmælislag? Atli Heimir á: Hann Gunnar Ben á afmæli, hann á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið, til haaamiiingjuuuu, til hamingju með afmælið, til haaamiiingjuuuu!
Nei það held ég ekki. Var að spila þetta í ammæli vinkonu minnar ekki alls fyrir löngu og hún var með bók eftir AHS.Hmmmmmm.......
Ég held að þetta sé að minnsta kosti í Grannmeti og átvextir eftir Þórarinn Eldjárn, með nótum.
... grænu ljóðabókinni... hún hlýtur að vera til á skólabókasafninu?
hmmm, kannski er ég að snúa þessu við.
Skrifa ummæli