6.10.05

Klukk

Litla systir klukkaði mig um daginn. Hér koma 5 misþekktar staðreyndir um mig:

1. Ég er kókisti. Þó ekki eins slæmur og ég var. Byrja daginn til dæmis ekki á kókglasi, og drekk sjaldan tveggja lítra flösku á einni kvöldstund. Fyrsti sopi daxins vekur hins vegar alltaf unaðshroll og tilfinningu sem kunnugir líkja við fyrsta nikótínskammt daxins eða jafnvel morgunsprautuna...

2. Ég er mjög klofinn í afstöðu minni til mjólkurvara. Vikum saman drekk ég litla sem enga mjólk, en svo hefst mjólkurþamb mikið og ég innbyrði jafnvel rúman lítra á dag af ískaldri mjólk. Lykilorðið þarna er ískaldri - fátt finnst mér ógeðslegra en volg mjólk. Ég drekk líka bara íslenska mjólk - drakk t.d. ekki mjólkursopa þessi 4 ár í London. Örfáa osta borða ég, og þá oft og í miklu magni, en flestar tegundir eru á bannlistanum, sérstaklega þessir skemmdu...

3. Ég fékk prófarkalestrargenið frá mömmu minni. Ég fæ sting í augun þegar ég sé illa orðaða málsgrein, hvað þá stafsetningarvillur. Talað mál er leiðrétt í huganum ef ekki upphátt. Vondar/vitlausar þýðingar í sjónvarpsþáttum og/eða bíómyndum koma mér í vont skap.
Eins og margir aðrir með sama heilkenni hef ég hins vegar afskaplega gaman af vísvitandi málleysum, segi gjarnan MÉR langar þegar mikið liggur við, og setningar eins og "Þetta grunti/grein mig" og "Mér er illt í fótnum" vekja alltaf lukku. Öfugsnúnar sagnbeygingar eins og Kúka-Kók-Kukum-Kokið eiga upp á pallborðið hjá mér, og X er uppáhalds-stafurinn minn - stórlega vanmetinn stafur hvers tími mun sannarlega koma...
Það skal tekið fram að ég er auðvitað ekki fullkominn. Geri mál- og stafsetningarvillur eins og aðrir. Reyni hins vegar að leiðrétta sjálfan mig eins mikið eða meira en aðra...

4. Ég þoli ekki þegar fólk segir: "Ég er alæta á tónlist". Orðið alæta hefur í þessu samhengi fengið nýja merkingu. Þetta fólk kann nefnilega alls ekki að meta hvers kyns tónlist. Því er bara sama hvaða hljóð berast að eyrum þess. Það hefur enga skoðun og tónlist snertir enga viðkvæma staði innra með því. Stundum finnst mér orðið hrææta eiga betur við en alæta...
Ég hef hins vegar ekki enn fundið tónlistarstefnu sem ekki á sínar góðu hliðar, stað og stund. Auðvitað eru góðu lögin misalgeng og ruslið oft yfirþyrmandi, en ég neita að útiloka tónlistartegund og segja: "Nei, ég hlusta ekki á kántrí..." Tónlistarsafn mitt sýnir þetta vel. Argasta vellupopp, darkmetall, klassík, jazz, R&B, grænlenskir trommudansar, elektróníka og ýmislegt annað í hrærigraut. Sumir fá auðvitað meira pláss en aðrir: Tom Waits á hálfa hillu á móti Pink Floyd á meðan Robbie Williams á eitt lag í safninu. (Lengi vel þoldi ég Robbie alls ekki, svo fór hann að syngja Rat Pack lög...) Heimstónlistardeildin er reyndar sífellt að stækka, hefur m.a.s. náð Waits...

5. Ég efast ekkert um að flestir ef ekki allir sem líta hér inn vita hver ég er, myndin hjálpar auðvitað líka til. -Hvar er myndin annars? Hvernig fæ ég hana aftur inn? Ég kann of lítið á tölvur...- Mér þætti hins vegar vænt um að þeir sem vilja endinlega (annað merki um fyrrnefnt heilkenni) hlekkja mig við síðuna sína gerðu svo undir einhvers konar stuttnefni. Nemendur eru nefninlega furðu forvitnir um kennara sína og kunna flestir að gúgla...


Þar hafiðiða hvítt á svörtu. Það tók mig eina og hálfa viku að setja þetta saman og velja úr staðreyndalista... Ég ákvað að minnast lítið sem ekkert á það sem kemur fram annars staðar á síðunni, svo sem sunnudaxkrossgátur og kóra... Þið getið þá bara tekið klukkutíma eða tvo í að skanna eldri færslur... ;-)

Ég veit hins vegar ekki hverjir líta hér við reglulega, né hvort þeir hafa verið klukkaðir. KLUKK. Taki þeir til sín sem vilja...

4 ummæli:

Varríus sagði...

Góð pæling með alæturnar. Hef aldrei huxað út í þetta en um leið og ég sé það orðað finnst mér eins og ég hafi alltaf vitað þetta. Sem er ekki verri skilgreining á góðri pælingu en hver önnur.

Hildigunnur sagði...

flestir sem segjast vera alætur hlusta svo líka bara á Létt FM eða Velgjuna og vita varla af annarri tónlist.

(búin að breyta hlekknum)

Tinna sagði...

Ég hef oft orðið ansi slæm í viljandi málvillum og ljótu máli. Fór t.d. að nota alltaf „sé“ í staðinn fyrir „er“ á tímabili. Þetta var orðið svo slæmt að mínir nánustu báðu mig um að hætta þessu. En ég meina, ef það sé gott veður þá getum við t.d. grillt.

Mokki litli sagði...

Alætur á tónlist er eins og fólk sem hlær að öllu. Fólk sem hlær að öllu er húmorslaust.