19.9.05

Útsala útsala hallelúja

Fór í 12 tóna á fimmtudaginn til að kaupa Takk... en kom út með 4 diska. Asnaðist svo inn í Skífuna um helgina og keypti 8 diska á útsölu þar. Allt góðir diskar - hver úr sinni áttinni eins og við er að búast af manni með svo klofinn tónlistarsmekk. Stefni á að fara aftur á sömu útsölu og kaupa fleiri diska, en þá fyrir skólann. Hlakka til.

Ekki leystist krossgáta síðustu viku. Er hins vegar hálfnaður með krossgátuna sem kom út í gær. Síðar kemur í ljós hvort seinni hlutinn er jafn auðveldur og sá fyrri.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við gerðumst helgaráskrifendur að Morgunblaðinu í gær, núna bíð ég bara spennt eftir næsta Sunnudagsblaði.