Danssýningin var ekki á réttum vettvangi og ekki fullmönnuð. Þar af leiðandi naut hvorki tónlist né dans sín til fullnustu. Samt gott að hafa lokið áfanganum. Ég er þó nokkuð ánægður með tónlistina, sérstaklega þegar maður hlustar á fyrstu tvo hlutana saman. Stefnir í nokkuð lógískan og heildstæðan klukkutíma, með tónlistarfræðilegri framþróun stefja og tilvitnunum fram og aftur í tíma a la Izzard... Að heyra bara þennan miðkafla er kannski dálítið eins og að sjá bara nýjustu StarWars myndina án þess að hafa séð númer 1 og 2 eða gömlu myndirnar. Mann vantar dálítið samhengið. Samt á að vera hægt að njóta kaflans...
Nú á bara að selja dansflokknum stykkið og gera það almennilega...
Það rigndi í Viðey. Alltaf þegar við vorum úti fór að rigna. Þegar við vorum inni að taka upp hljóðskúlptúra og mála eld skein sólin úti. Svo fórum við út og komumst passlega langt frá húsinu til að rennblotna örugglega þótt við hlypum inn...
Afraxturinn sýndur á blaðamannafundi á laugardaxmorgun í Viðey.
Júróvísjón nálgast. Uppgötvaði skyndilega í dag að ég hafði boðað fólk á æfingu fimmtudaginn 19. Breytti því í snarhasti!
Ég er kominn með stjórnandaöxl! Infra Spinatus (alltsvo vöðvafestur í upphandlegg) ekki að höndla álagið kringum vortónleikana fyrir rúmri viku. Hvíldi vel alla síðustu viku, rústaði svo öllu í gær, bæði með kassaburði í Viðey og í Messíasi í gærkvöldi. - Asnalegt að stjórna flóknum fúgum einhentur, og það með vinstri! - Stefni í sjúkraþjálfun á Grensás sem fyrst...
4 ummæli:
Væri sko ekki vitlaust að biðja þennan sjúkraþjálfara um leiðsögn með tæknina...
Aha, nú eða kannski fara bara að læra þetta... ;)
Eða það...
en að sleppa hvoru tveggja og fá sér bara bjór?
og svo annan til....
og svo... you know the rest
Skrifa ummæli