4.5.05

Nýtt efni og endurtekið

Vortónleikar gengu vel, reyndar mjög vel. Allt hjakkið í vetur, raddþjálfun Bjarneyjar Ingibjargar, endalaust bögg og pikk í upphitunaræfingum - allt skilaði þetta sér í vikunni fyrir tónleika. Kórinn sem mætti á æfingu upp úr 8 á mánudaxkvöldið var ekki sami kór og söng vortónleika 5 dögum síðar. Gaman - en stressandi!

Var að fá þær fréttir að ég á að taka þátt í Listahátíð með 2 árgöngum úr skólanum, fara út í Viðey á mánudaginn með Rassa Prump og hjálpa til við að búa til hljóðskúlptúra fyrir gjörninginn hans í Daxbrún. Spennandi.

Sagði vantrúuðum unglingum að rokk væri alltaf uppreisn gegn eldri kynslóðum og að Manson væri í raun ekki að gera neitt nýtt, bara að ganga aðeins lengra en forverar hans í sjokk-rokkinu... Einnig að þau ættu öll eftir að hneyxlast á og reyna að ritskoða tónlist afkvæma sinna... Þau keyptu það ekki...
Verður gaman að heyra fyrirlestra sama hóps á næstu vikum: Allir eiga að velja sér eitt dægurlag, amk 10 ára gamalt, og kynna það fyrir okkur hinum. Veit að við eigum von á Presley, Bítlunum, Pink Floyd og Led Zeppelin, en líka Ninu Hagen, Pantera og Cradle of Filth! Hlakka til...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já ég hneykslaði nokkra goþþara alveg hrikalega þegar ég hélt því staðfast fram að Marilyn Manson væri ekki að gera neitt sem Alice Cooper hefði ekki gert áður... kvenmannsnafn, hryllingsmyndamótíf, S&M-stöffið... nei, þeir voru ekki með á því.