13.5.05

"It's rung down the curtain og joined the choir invisible"

Sótti Huun Huur Tu miðana í gær og ílengdist í bænum. Keypti afmælisgjöf handa litla stúf (11 ára á morgun!) fyrir hönd okkar eldri systkina hans, raxt í leiðinni á snilldarpakka: 4 DVD diska með helstu afrekum Monty Python hópsins, alltsvo Meaning of Life, Life of Brian, Holy Grail og svo And Now For Something Completely Different sem er samansafn af bestu Flying Circus sketsunum. Allt þetta fyrir aðeins kr. 2999! Frábært. Auðvitað keypti ég þetta.

Svo fór ég í 12 tóna til að skoða. Þar fékk ég kaffi, eins og reyndar alltaf þegar ég kem þar inn. Hefur eitthvað að gera með alla hundraðþúsundkallana sem ég eyddi þar fyrir hönd skólans hérna um árið. Nema hvað, heyrði fyrir tilviljun rætt um Kim kallinn Larsen og miðasölu fyrir tónleikana hans hér í haust. Ákvað að gera vel við frúna (sem er hálf-dönsk) og keypti 2 miða í sérstakri og persónulegri forsölu. Mér hefur reyndar aldrei fundist Larsen stórkostlegur, en hey, fyrst ég gat farið á Scooter fyrir frúna ætti Kim Larsen ekki að vera neitt stórmál..!

Og að lokum: Hver kannast við tilvitnunina hér efst? Svör í kommentakerfið :)

2 ummæli:

Helvutlen sagði...

It's just pining... that's all.

GEN sagði...

Hmmm, any particular fjords, or just fjords in general...?