Litla systir þolir ekki auglýsinguna þar sem vænum mjólkurskammti er hellt yfir unga stúlku.
Mér finnst það ekkert svo slæmt, alla vega ekki í samanburði við appelsín! Sprautað með brunaslöngu yfir alla sem í garðinum eru. Oj!
Eða nýju grillspjótin frá Nóatúni? Ullabjakk! Og þetta birta dagblöð og sjónvarpsstöðvar án athugasemda...!
5 ummæli:
Heyrðu já, ég fæ nettan hroll þegar ég sé appelsínauglýsinguna líka. Tilhugsunin um klístur er þó ekki jafn slæm og úldin og stæk mjólkurfýla.. oj. Afhverju finnst þessu auglýsingafólki svona sniðugt að vera að baða fólk í drykkjarvörum?
Mér finnst grillspjótaauglýsingin verri... Þeir segja: Við bjóðum upp á laxaspjót, lambaspjót og barnaspjót!!!!! Hvað meina þeir, ætla þeir að grilla börnin....?
Nákvæmlega, "babies on spikes!" Þetta finnst mér krípí...
Játning:
ég er auglýsingamaður og elllska tilhuxunina um að baða fólk upp úr drykkjarvörum (bíðiði bara þangað til áfengisauglýsingar verða leyfðar...)
Aukinheldur finnast mér afglöp eins og "barnaspjót" yndisleg.
Foreldrakjöt í sunnudagsmatinn!
Var ekki búin að taka eftir fyrirsögninni...
Skrifa ummæli